KNX kerfi, BMS og hússtjórnarkerfi fyrir heimili og atvinnuhúsnæði
Gaflarar hanna, setja upp og þjónusta KNX kerfi og önnur hússtjórnarkerfi fyrir heimili, fyrirtæki og atvinnuhúsnæði. Lausnirnar henta fyrir ljósastýringu, hitastýringu, loftræsingu, orkumælingar, senustýringar og sjálfvirkni bygginga.
KNX kerfi fyrir lýsingu, hita og sjálfvirkni
KNX er sveigjanleg lausn fyrir hússtjórn þar sem hægt er að tengja saman lýsingu, hita, viðveruskynjun, gluggatjöld, orkumælingar og önnur tæknikerfi byggingar. Gaflarar geta aðstoðað við hönnun, uppsetningu, forritun, breytingar og viðhald á KNX kerfum.
Við sinnum bæði nýjum KNX lausnum og breytingum á eldri KNX/Instabus kerfum, meðal annars vegna ljósastýringar, hitastýringar, senustýringa og samþættingar við önnur hússtjórnarkerfi.
BMS fyrir atvinnuhúsnæði og stærri byggingar
Fyrir stærri byggingar hanna og tengja Gaflarar hússtjórnarkerfi sem geta stjórnað lýsingu, hita, loftræsingu, gluggum, orkumælingum og tæknikerfum. Lausnirnar geta byggt á KNX, ABB Cylon, Siemens lausnum eða öðrum kerfum eftir stærð og þörfum verkefnisins.
Hvað er hússtjórnarkerfi?
Hússtjórnarkerfi (e. Building Management System eða BMS) tengja saman tæknikerfi byggingar og gera kleift að stjórna þeim miðlægt eða sjálfvirkt.
Með slíkum kerfum er hægt að bæta þægindi, auka orkunýtingu og einfalda rekstur bygginga.
Kerfin geta stjórnað meðal annars:
- Lýsingu
- Hitakerfum og gólfhita
- Loftræsingum
- Gluggum og gardínum
- Orkumæling og álagsstýring
Kerfi sem við vinnum með
Gaflarar hafa reynslu af uppsetningu og forritun fjölbreyttra hússtjórnarkerfa. Við veljum lausn eftir stærð og þörfum hvers verkefnis.
- KNX / Instabus
Algengt og opið staðalkerfi fyrir snjallheimili og byggingar. - ABB Free@Home
Notendavænt snjallheimiliskerfi sem hentar vel í íbúðarhúsnæði. - ABB Cylon
Öflugt BMS kerfi fyrir stærri byggingar og atvinnuhúsnæði. - Siemens lausnir
Hússtjórnarkerfi og sjálfvirknilausnir fyrir stærri kerfi og tæknibyggingar.
Þjónusta okkar á sviði hússtjórnarkerfa
- Hönnun og ráðgjöf við val á hússtjórnarkerfi
- Uppsetning og tenging stýrikerfa
- Forritun og stillingar kerfa
- Samþætting við önnur tæknikerfi bygginga
- Uppfærsla og viðhald eldri kerfa
- Bilanagreining og þjónusta
- Hönnun, uppsetning og forritun KNX kerfa
- Breytingar og bilanagreining á eldri KNX / Instabus kerfum
Sjá einnig:
Iðnstýringar, PLC og SCADA
LoRaWAN / IoT skynjarakerfi
Viðhald og bilanagreining rafkerfa
Raflagnir og tölvulagnir
