Framúrskarandi fyrirtæki · 2026

Gaflarar eru Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Gaflarar hafa hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026 og skipa þar með sess í hópi íslenskra fyrirtækja sem skara fram úr í rekstri.

Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk, rekstrarárangur og stöðugleika. Aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja uppfylla þessi skilyrði ár hvert.

Við hjá Göflurum erum stolt af þessum áfanga. Hann endurspeglar traustan rekstur, metnað og þá öflugu liðsheild sem stendur að baki fyrirtækinu.

Við þökkum starfsfólki okkar fyrir frábært framlag og viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir traustið.

Viðurkenningin er okkur hvatning til að halda áfram að byggja upp öflugt fyrirtæki með gæði, fagmennsku og áreiðanleika að leiðarljósi.

Gaflarar – Framúrskarandi fyrirtæki 2026 hjá Creditinfo