Tæknilegar lausnir og samþættingar
Yfirlit fyrir tæknifólk, rekstraraðila og erlenda birgja.

PLC og framleiðslulínur
Við vinnum meðal annars með Siemens LOGO!, S7-1200, S7-1500 og ET 200SP. Í framleiðslulínu samræmum við ræsingu, stöðvun og framhjáhlaup véla og skilgreinum viðbrögð við bilunum. Merki frá hverri vél um hvort hún sé tilbúin til keyrslu eru hluti af þeirri stýringu. Fyrir gangsetningu skilgreinum við handstýringar, tímamörk og hvernig línan á að fara aftur í gang. I/O-listi og lýsing á merkjum tengja forritið við teikningar og búnað.
HMI, SCADA og rekstraryfirsýn
Við vinnum með Siemens WinCC Unified og Siemens Desigo CC fyrir skjámyndir og yfirsýn yfir rekstur kerfa. Viðmótið þarf að sýna stöðu búnaðar, ástæður stöðvunar, viðvaranir og mæligildi með réttum einingum. Við skilgreinum tímaskrár, rekstrarhami og heimildir til handstýringar. Með rekstraraðila er ákveðið hvaða gögn á að geyma og hvernig þau verða aðgengileg.
Hússtjórn, BMS og lýsing
ABB Cylon, Siemens S7-1500 og Siemens Desigo eru meðal BMS-lausna sem við vinnum með. Þær geta tengst loftræsingu, hita, dælum og öðrum tæknikerfum. KNX, Loxone og ABB free@home nýtast fyrir ljós, hita og sjálfvirkni rýma; DALI fyrir ljósabúnað. Við skilgreinum mörk milli staðbundinnar stýringar og yfirkerfis svo ljóst sé hvaða kerfi stýrir hverju gildi.
Samskipti og samþættingar
Modbus RTU/TCP, BACnet og PROFINET eru meðal samskiptaleiða í verkefnum okkar. Við tengingu þarf að staðfesta gagnagerð, mælieiningar, skölun, auðkenni og hegðun við sambandsrof. MQTT og HTTP API geta flutt mæligögn og atburði milli jaðarbúnaðar og gagnakerfa. OPC-samþætting er metin út frá stuðningi og útgáfum kerfanna. Við skilgreinum einnig hver má skrifa skipanir og setpunkta.
IoT og gagnavettvangar
Við höfum unnið með Milesight-skynjara og gáttir, ChirpStack og ThingsBoard. LoRaWAN, NB-IoT, LTE-M og staðbundnar tengingar eru valdar eftir mæliþörf og aðstæðum. Skynjari, staðsetning, eining og tímastimpill þurfa að fylgja gögnum alla leið í mælaborð eða útflutning. Aðskilnaður staða og notenda, sambandstap og mæligæði eru hluti af útfærslunni.
Hleðslur og OCPP
Hleðslulausn þarf rafdreifingu, vernd, álagsstýringu og skýrt rekstrarfyrirkomulag. Við metum OCPP-tengingu og stuðning stöðvar og rekstrarkerfis eftir verkefni. Kerfisval tekur mið af fjölda notenda, mögulegri stækkun og hegðun við nettap.
Snjallmyndavélar og myndgreining
Við vinnum með myndgreiningu til að meta ástand vara og umbúða og staðfesta að prentuð dagsetning og lotunúmer séu rétt og til staðar. Við prófum meðal annars CamThink edge AI-myndavélar við framleiðslulínu og vinnum að tengingu við Siemens PLC. Sjónsvið, lýsing, hraði og leyfilegur viðbragðstími ráða miklu um útfærsluna. Í bílnúmeralestri og hliðastýringu þarf einnig að skilgreina aðgangsheimildir, varðveislu upplýsinga og hvernig kerfið á að virka á staðnum.
Prófanir, skjölun og þjónusta
Gangsetning tengir forrit, teikningar og raunbúnað saman. Við yfirförum merki og viðbrögð kerfisins, tökum afrit og skráum þær stillingar sem þarf við þjónustu. Netöryggi felur meðal annars í sér afmarkaðan aðgang, aðskilnað neta og fjartengingar eftir þörfum. Við afhendingu er ákveðið hvaða gögn fylgja verkinu og hvernig þjónustu verður háttað. Rafræn þjónustubók getur haldið utan um sögu búnaðarins.