Persónuvernd á þessum vef
Upplýsingar um fyrirspurnir og notkun vefsins.
Fyrirspurnir
Þegar þú sendir fyrirspurn fara nafn, netfang, sími, fyrirtæki eða húsfélag, valið erindi og skilaboð um vefþjón okkar hjá Hetzner til Microsoft 365 og berast Göflurum í tölvupósti. Innslátturinn er ekki vistaður í gagnagrunni vefsins eða skrifaður í annála sendingarþjónustunnar. IP-tala og auðkenni sendingar eru geymd tímabundið í vinnsluminni til að takmarka misnotkun og tvísendingar. Fyrirspurnin er varðveitt í póstkerfi Gaflara vegna afgreiðslu erindisins.
Gaflarar nota upplýsingar í erindinu til að svara fyrirspurninni og fylgja henni eftir. Sendu aðeins þær upplýsingar sem þarf vegna erindisins.
Varðveisla og aðgangur
Upplýsingar í fyrirspurnum eru notaðar til að svara erindum, vinna tilboð og fylgja verkefnum eftir. Varðveisla ræðst af efni erindis og því hvort úr því verður viðskiptasamband eða verkefni. Nánari upplýsingar um varðveislu tiltekins erindis má fá hjá skrifstofu Gaflara.
Aðgangur að erindum er takmarkaður við þá sem þurfa upplýsingarnar til afgreiðslu. Ekki er óskað eftir viðkvæmum persónuupplýsingum í fyrirspurnarforminu.
Notkun vefsins
Ef þú samþykkir mælingar notum við Google Analytics til að sjá hvaða síður eru skoðaðar og hvernig vefurinn er notaður. Google fær þá tæknilegar upplýsingar um heimsóknina og vafrann, þar á meðal IP-tölu við tengingu. Google Analytics notar vafrakökur til að greina heimsóknir. Mælingarnar eru ekki virkjaðar fyrr en þú samþykkir þær. Vefurinn virkar að fullu þótt þú hafnir.
Þú getur breytt valinu eða afturkallað samþykki í „Vafrakökustillingar“ neðst á síðunni. Við geymum valið í vafranum í allt að 180 daga. Þegar samþykki er afturkallað stöðvast frekari mælingar og Analytics-vafrakökum sem þessi vefur hefur sett er eytt. Það eyðir ekki sjálfkrafa gögnum sem þegar hafa borist Google.
Við sendum ekki innihald fyrirspurna í Google Analytics. Upplýsingar um vinnslu hjá Google eru á persónuverndarsíðu Google.
Innskráning í ritstjórnarkerfi er aðskilin frá almennri notkun vefsins. Hýsing hjá Hetzner og afhending um Cloudflare fela í sér vinnslu tæknilegra upplýsinga, svo sem IP-tölu og beiðna til vefsins. Tenglar á kort, framleiðendur og önnur ytri vefsvæði opna þjónustu annarra aðila; þar gilda þeirra persónuverndarupplýsingar.
Erindi um persónuupplýsingar
Gaflarar ehf., kt. 700192-2379, Lónsbraut 2, 220 Hafnarfjörður. Fyrirspurnir um persónuupplýsingar má senda á [email protected].
Þú getur óskað eftir upplýsingum um vinnslu, aðgangi og leiðréttingu, og eftir atvikum eyðingu, takmörkun eða andmælt vinnslu. Nánari upplýsingar um réttindi og kvartanir eru hjá Persónuvernd ↗.