Félagið

Um Gaflara

Rafverktakar í Hafnarfirði frá 1992.

Hafnarfjörður

Rafverktaka er grunnurinn

Gaflarar hófu starfsemi 1. janúar 1992. Við sinnum raflögnum í nýbyggingum, breytingum á eldri rafkerfum og viðhaldi fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir.

Hefðbundin rafvirkjastörf eru stærsti hluti starfseminnar. Sérþekking í stýringum og tæknikerfum bætist við þann grunn.

Frá fyrstu lögnum að gangsetningu

Við tökum að okkur raflagnir, uppsetningu stýribúnaðar og forritun og sinnum þjónustu eftir gangsetningu. Þannig getur sami aðili fylgt verkinu frá undirbúningi þar til búnaðurinn er kominn í notkun.

Við vinnum bæði á heimilum og við stærri framkvæmdir í atvinnuhúsnæði og framleiðslu. Fyrir hvert verk er samið um hvað við tökum að okkur.

Fólkið og félagið

Hjá Göflurum starfa meðal annars nemar, sveinar, meistarar og rafiðnfræðingar.

Eigendur eru Þorvaldur Friðþjófsson, Ólafur Hjálmarsson, Sigurður Óli Þorvaldsson og Bjarni Freyr Þórðarson. Framkvæmdastjóri er Bragi Reynisson.

Starfsfólk og tengiliðir ↗