Þjónusta Gaflara
Rafbílahleðslur
Hleðslulausnir fyrir heimili, fyrirtæki, húsfélög og bílageymslur.

Uppsetning sem hentar rafkerfinu
Við metum fyrirliggjandi rafkerfi, veljum búnað og sjáum um lagnir, tengingu og gangsetningu. Við vinnum meðal annars með Easee og Rolec.
Fleiri notendur og álagsstýring
Fjöldi hleðslustöðva og afl hússins ráða því hvernig sameiginlegt hleðslukerfi er útfært. Við skoðum álagsstýringu, möguleika á að bæta við stöðvum og hvernig reka á kerfið.
Þjónusta eftir uppsetningu
Við sinnum breytingum, uppfærslum og bilanagreiningu á hleðslubúnaði. Einnig skoðum við hvort hægt sé að tengja hann við rekstrarkerfi.