Vörulína · Inniloft og ljósorka
Nyx
Nyx er þunnur þráðlaus inniskynjari fyrir hitastig, hlutfallsraka og birtustig. Sólarsella nýtir birtuna í rýminu til að knýja skynjarann og draga úr þörf fyrir rafhlöðuskipti.

Hvar nýtist vörulínan?
Fyrir skrifstofur, skóla, íbúðir og önnur innirými þar sem mæla þarf hita, raka og birtu. Við skoðum hvort næg birta sé til staðar fyrir þá sendingartíðni sem þarf.
Útfærslur í vörulínunni
Helstu valkostir. Við aðstoðum við að velja gerð og samskipti fyrir verkefnið.
- Nyx LoRaWAN
Hita-, raka- og birtumælingar yfir LoRaWAN net.
Meira hjá framleiðanda ↗- Nyx mioty
Sömu mæligildi með samskiptum yfir mioty skynjaranet.
Meira hjá framleiðanda ↗
Helstu upplýsingar
| Mæligildi | Hitastig, hlutfallsraki og birtustig |
|---|---|
| Aflgjafi | Ljósorka og innbyggð orkugeymsla |
| Samskipti | LoRaWAN eða mioty |
| Stillingar | NFC; orkuþörf ræðst af mæli- og sendingartíðni |


