Hússtjórnarkerfi – snjallstýring fyrir heimili og byggingar

Hússtjórnarkerfi gera þér kleift að stýra lýsingu, hita, loftræsingu og öðrum kerfum hússins á einfaldan og sjálfvirkan hátt.
Gaflarar hanna og setja upp áreiðanleg kerfi fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði.

Hvað er hússtjórnarkerfi?

Hússtjórnarkerfi (e. Building Management System eða BMS) tengja saman tæknikerfi byggingar og gera kleift að stjórna þeim miðlægt eða sjálfvirkt.
Með slíkum kerfum er hægt að bæta þægindi, auka orkunýtingu og einfalda rekstur bygginga.

Kerfin geta stjórnað meðal annars:

  • Lýsingu
  • Hitakerfum og gólfhita
  • Loftræsingum
  • Gluggum og gardínum
  • Orkumæling og álagsstýring

Kerfi sem við vinnum með

Gaflarar hafa reynslu af uppsetningu og forritun fjölbreyttra hússtjórnarkerfa. Við veljum lausn eftir stærð og þörfum hvers verkefnis.

  • KNX / Instabus
    Algengt og opið staðalkerfi fyrir snjallheimili og byggingar.
  • ABB Free@Home
    Notendavænt snjallheimiliskerfi sem hentar vel í íbúðarhúsnæði.
  • ABB Cylon
    Öflugt BMS kerfi fyrir stærri byggingar og atvinnuhúsnæði.
  • Siemens lausnir
    Hússtjórnarkerfi og sjálfvirknilausnir fyrir stærri kerfi og tæknibyggingar.

Þjónusta okkar á sviði hússtjórnarkerfa

  • Hönnun og ráðgjöf við val á hússtjórnarkerfi
  • Uppsetning og tenging stýrikerfa
  • Forritun og stillingar kerfa
  • Samþætting við önnur tæknikerfi bygginga
  • Uppfærsla og viðhald eldri kerfa
  • Bilanagreining og þjónusta