Um Gaflara

Gaflarar ehf er rafverktakafyrirtæki í Hafnarfirði sem hóf starfsemi 1. janúar 1992. Fyrirtækið sinnir fjölbreyttum verkefnum á sviði raflagna, stýrikerfa og tæknilausna fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir.

Eigendur fyrirtækisins eru:
Þorvaldur Friðþjófsson, Ólafur Hjálmarsson, Sigurður Óli Þorvaldsson og Bjarni Freyr Þórðarson.

Framkvæmdastjóri er:
Bragi Reynisson.

Verkstæði og skrifstofa eru að:
Lónsbraut 2, 220 Hafnarfjörður.


Þjónusta

Aðalstarfsemi Gaflara felst í raflögnum í nýbyggingum, breytingum á eldri rafkerfum og þjónustu við fyrirtæki og stofnanir. Við sinnum bæði smærri verkefnum og stærri framkvæmdum með áherslu á fagleg vinnubrögð og áreiðanlega þjónustu.

Í dag sameina Gaflarar hefðbundna rafverktakaþjónustu og sérhæfða tæknivinnu, meðal annars hússtjórnarkerfi, iðnstýringar, PLC kerfi, öryggiskerfi, rafbílahleðslur og IoT lausnir fyrir mælingar og rekstrarvöktun.

Helstu verkefni eru meðal annars:

  • Raflagnir í íbúðar- og atvinnuhúsnæði

  • Rafbílahleðslur fyrir heimili, fyrirtæki og húsfélög

  • Hússtjórnarkerfi og sjálfvirkni bygginga

  • Iðnstýringar og tæknikerfi

  • Viðhald og bilanagreining rafkerfa


Tæknikerfi

Við fylgjumst vel með þróun í raf- og tæknikerfum og bjóðum upp á lausnir á sviði öryggis- og sjálfvirknikerfa, svo sem brunaviðvörun, innbrotsvörn, eftirlitsmyndavélar og aðgangsstýringu.

Við bjóðum hússtjórn með KNX og Loxone fyrir lýsingu, hita og sjálfvirkni og erum Loxone Silver Partner. Fyrir tæknikerfi bygginga vinnum við meðal annars með ABB Cylon, Siemens S7-1500 stýrivélar og Siemens Desigo.


Fagleg þjónusta

Við gerum tilboð í bæði smærri og stærri verkefni og leggjum áherslu á vandaða ráðgjöf og góða þjónustu.

Gaflarar ehf eru aðilar að Samtökum rafverktaka (SART).

 

SART