PLC forritun, iðnstýringar og SCADA lausnir

Gaflarar hanna og setja upp stýrikerfi fyrir vélar, framleiðslulínur og tæknibúnað.
Við bjóðum lausnir sem bæta rekstur, auka áreiðanleika og einfalda stjórnun ferla.

PLC forritun og iðntölvuforritun

Gaflarar sinna PLC forritun, iðntölvuforritun og forritun stýrivéla fyrir vélar, dælukerfi, framleiðslubúnað og tæknikerfi. Við getum aðstoðað við ný stýrikerfi, breytingar á eldri PLC kerfum, bilanagreiningu, prófanir, gangsetningu og tengingu við HMI eða SCADA skjámyndakerfi.
Við vinnum meðal annars með Siemens PLC lausnir, TIA Portal, S7-1200 og S7-1500, auk annarra iðnaðarlausna eftir þörfum verkefnisins.

Stýringar fyrir vélar og tæki

Iðnstýringar gera kleift að stjórna vélum og framleiðsluferlum með sjálfvirkum og áreiðanlegum hætti.
Slík kerfi eru notuð í verksmiðjum, tæknibúnaði, dælukerfum, framleiðslulínum og öðrum iðnaði þar sem nákvæm stjórn og eftirlit er mikilvægt.

Með rétt hönnuðum stýrikerfum er hægt að bæta afköst, draga úr bilunum og einfalda daglegan rekstur.

Stýrikerfi og tækni

  • PLC stýringar
    Forritanlegar stýritölvur sem stjórna vélum og ferlum.
  • HMI stjórnborð
    Snertiskjáir og viðmót sem gera rekstraraðilum kleift að fylgjast með og stjórna kerfum.
  • Skynjarar og mælingar
    Nákvæmar mælingar á hitastigi, þrýstingi, flæði og öðrum breytum.
  • Fjartengingar og samskipti
    Samskipti milli kerfa með iðnaðar samskiptastöðlum.

Okkar þjónusta

  • Hönnun og uppsetning stýrikerfa
  • PLC forritun, iðntölvuforritun og uppsetning
  • HMI skjáviðmót og notendakerfi
  • Uppfærsla og endurnýjun eldri stýrikerfa
  • Bilanagreining og þjónusta
  • Samþætting við önnur tæknikerfi
  • Forritun stýrivéla og sjálfvirkra stjórnkerfa
  • HMI forritun og skjámyndakerfi
  • SCADA forritun og gagnasöfnun
  • Prófanir, gangsetning og bilanagreining PLC kerfa
  • Uppfærsla og endurnýjun eldri PLC/stýrikerfa

Notkunarsvið

  • Dælukerfi og vatnsmeðhöndlun
  • Framleiðslulínur
  • Vélastýringar
  • Hitakerfi og iðnaðarofnar
  • Flutnings- og færibandakerfi
  • Sjálfvirkni í framleiðslu
  • Dælustöðvar
  • Loftræsikerfi
  • Hitakerfi
  • Tankar og vökvakerfi
  • Gagnasöfnun og rekstrarviðvaranir
  • Dælustýringar
  • Loftræstistýringar
  • Vélastýringar
  • Stýringar fyrir tanka og vökvakerfi
  • Stýringar fyrir framleiðslubúnað
  • Fjarvöktun og viðvaranir
  • Orku- og rekstrargögn úr PLC/SCADA kerfum

Siemens PLC og TIA Portal

Gaflarar vinna með PLC stýringar, HMI skjái og iðnaðarlausnir fyrir vélar, dælukerfi, framleiðslubúnað og tæknikerfi. Við getum aðstoðað við hönnun, forritun, uppsetningu og bilanagreiningu á Siemens PLC kerfum, þar á meðal S7-1200, S7-1500 og lausnum í TIA Portal.

NFO Drives – tíðnibreytar með hreinni sínusspennu

Gaflarar bjóða mótorstýringar með NFO Drives fyrir dælur, viftur og annan vélbúnað. NFO Sinus tíðnibreytar skila hreinni sínusspennu til mótorsins — Pure Sine Wave — sem einfaldar uppsetningu og hentar sérstaklega vel við langar kapallagnir og endurnýjun eldri kerfa.

Óskermaðir mótorkaplar

NFO Sinus er hannaður fyrir notkun með óskermuðum mótorköplum og uppfyllir tilgreindar EMC-kröfur án viðbótar EMC-síu þegar búnaðurinn er rétt uppsettur. Því er oft hægt að nýta fyrirliggjandi kapla áfram og draga úr kostnaði og raski við endurnýjun mótorstýringa.

Langar kapallagnir og frjálsari staðsetning

Hrein sínusspenna gerir kleift að hafa langt á milli tíðnibreytis og mótors, án hefðbundinna lengdartakmarkana sem tengjast PWM-útgangi. Þannig má staðsetja tíðnibreytinn í aðgengilegum stjórnskáp þótt mótorinn sé langt frá.

Þetta hentar sérstaklega vel fyrir borholudælur, þar sem tíðnibreytir og stjórnbúnaður geta verið inni í húsi, í aðgengilegu og vernduðu umhverfi, þótt löng leið sé að borholunni og niður að dælunni.

Kapallengd og leiðaraþversnið eru valin með tilliti til spennufalls, álags og leiðbeininga framleiðanda.

Hljóðlátari og mótorvænni rekstur

Sínusútgangurinn kemur í veg fyrir hátíðnihljóð í mótornum sem tengist PWM-rofun. Samkvæmt NFO myndar tæknin heldur ekki þá legustrauma sem geta valdið rafrænum skemmdum í mótorlegum. Þetta eru mikilvægir kostir þar sem hávaði, rafsegultruflanir og ending búnaðar skipta máli.

Ráðgjöf, uppsetning og samþætting

Við aðstoðum við val á tíðnibreyti, yfirferð mótors og kapallagna, uppsetningu, stillingar og gangsetningu. Við samþættum mótorstýringuna við PLC, HMI eða SCADA eftir þörfum verkefnisins.

Hafðu samband við Gaflara um NFO Drives fyrir nýja uppsetningu eða endurnýjun á núverandi mótorstýringu.

SCADA og skjámyndakerfi

Þegar þörf er á yfirsýn, gagnasöfnun, viðvörunum og rekstrarsögu má tengja PLC kerfi við HMI eða SCADA kerfi. Slík lausn hentar fyrir dælustöðvar, loftræstikerfi, framleiðslu, hitakerfi og annan tæknibúnað þar sem rekstraraðilar þurfa skýra yfirsýn.

Við vinnum einnig með samskipti milli tækja og kerfa, svo sem PROFINET, Modbus, BACnet og tengingar milli PLC, HMI, SCADA og hússtjórnarkerfa.

Netöryggi PLC, HMI og SCADA kerfa

PLC, HMI og SCADA kerfi eru hjarta margra véla, dælukerfa, loftræsikerfa, framleiðslulína og annarra rekstrarkerfa. Þegar slík kerfi tengjast netum, fjartengingum eða öðrum gagnakerfum þarf að huga sérstaklega að öryggi án þess að skerða rekstrarhæfi kerfisins.

Gaflarar geta aðstoðað við yfirferð og hönnun á öruggari iðnstýringakerfum, meðal annars með aðskilnaði stýrineta, öruggari fjartengingum, skýrri notendastýringu, afritun PLC/HMI forrita og skjölun á mikilvægum stillingum.

Við nálgumst netöryggi iðnstýringa út frá rekstri og raunbúnaði. Það skiptir máli að vita hvaða kerfi má uppfæra, hvaða kerfi má ekki stöðva, hvaða tengingar eru nauðsynlegar og hvaða aðgangur er óþarfur.

Bilanagreining, breytingar og gangsetning

Við tökum að okkur bilanagreiningu, breytingar og gangsetningu á PLC kerfum og öðrum iðnstýringum. Slík vinna getur falist í yfirferð á forriti, merkjalista, skynjurum, mótorstýringum, samskiptum milli tækja, HMI skjáum eða tengingu við SCADA kerfi.

Þjónustan hentar bæði þegar setja á upp nýtt stjórnkerfi og þegar eldri stýrikerfi þarf að endurnýja, bæta eða tengja við nýjan búnað.

Fyrir tæknifólk: ítarlegt yfirlit um stýringar, samskiptastaðla og samþættingar →