Hraunvallaskóli · Hússtjórn

Endurnýjun hússtjórnarkerfis í Hraunvallaskóla

Gaflarar endurnýja hússtjórnarkerfi Hraunvallaskóla í Hafnarfirði. Skipt er um eldri PLC-stýringar og sett upp nýtt SCADA-skjákerfi.

Verkefnið er unnið haustið 2026 og nær meðal annars til stýringa fyrir loftræsingu og hitakerfi hússins. Við endurnýjunina eru tengingar, mæligildi og virkni búnaðar yfirfarin og prófuð á staðnum.

Stýringar og skjákerfi

Í þessum áfanga eru nýju PLC-stýringarnar komnar í rekstur. Samhliða prófunum og fínstillingum er unnið að nýjum skjámyndum fyrir rekstraraðila.

Í SCADA-kerfinu má sjá stöðu búnaðar, lesa mæligildi og breyta stillingum. Skjámyndirnar eru settar upp þannig að auðvelt sé að finna þær upplýsingar sem þarf við daglegan rekstur og bilanagreiningu.