Þjónusta Gaflara

Hússtjórn og BMS

Stýringar fyrir ljós og hita, loftræsingu og önnur tæknikerfi bygginga.

Innanhússmynd úr fyrirtækjakynningu Gaflara

Ljós, hiti og sjálfvirkni

Við vinnum með KNX, Loxone og ABB free@home fyrir lýsingu, hita, gardínur, viðveruskynjun og senur. Við aðstoðum við kerfisval, uppsetningu, forritun og þjónustu.

KNX

Dreifð hússtjórn fyrir heimili og atvinnuhúsnæði. Við sinnum nýjum kerfum og breytingum á eldri KNX/Instabus-uppsetningum. DALI-lýsing getur tengst hússtjórninni.

Loxone

Gaflarar eru Loxone Silver Partner. Við sjáum um ráðgjöf, uppsetningu, forritun og þjónustu Loxone-kerfa.

BMS fyrir tæknikerfi bygginga

Við vinnum með ABB Cylon, Siemens S7-1500 stýrivélar og Siemens Desigo til að stýra meðal annars loftræsingu, hita og dælum. Skjámyndir sýna stöðu kerfanna og mæligildi. Tímastillingar og viðvaranir eru lagaðar að notkun hússins.

Gaflarar eru Loxone Silver Partner ↗