Mælingar og IoT · Rekstur bygginga

Betri mælingar geta lækkað viðhalds- og rekstrarkostnað

Er loftræsingin í gangi um helgar eða orkunotkun meiri en áður? Mælingar geta hjálpað til við að finna orsökina og athuga hvort breytingar skili árangri.

Hitastig sem hækkar smám saman eða búnaður sem fer sífellt oftar í viðvörun getur bent til þess að eitthvað þurfi að skoða. Með mælingum yfir tíma er auðveldara að sjá hvenær breytingin byrjaði.

Gaflarar tengja mæla og skynjara við kerfi sem safna gögnum og birta þau fyrir rekstraraðila. Mælingarnar geta komið úr hússtjórnarkerfi sem er þegar til staðar eða frá nýjum skynjurum.

Velja mælingar eftir viðfangsefninu

Fyrst þarf að ákveða hvað á að skoða. Það ræður því hvaða mælar eru valdir, hvar þeir eru settir upp og hversu oft þarf að mæla.

Hita- og rakamælingar geta sýnt að aðstæður séu að breytast. Orkumælingar geta bent á búnað sem gengur að óþörfu. Mismunaþrýstingur, ásamt upplýsingum um gang búnaðar, getur hjálpað við að greina breytingar í loftræsikerfum. Við matið þarf líka að skoða notkun hússins, veður og stöðu kerfanna.

Bregðast við niðurstöðunum

Ákveða þarf hvenær viðvörun á að berast, hver tekur við henni og hver sinnir málinu. Gögnin nýtast síðan við bilanagreiningu, við að forgangsraða viðhaldi og til að athuga áhrif breytinga.

Mælingar geta hjálpað til við að finna óþarfan gang búnaðar og draga úr útköllum og orkusóun. Árangurinn ræðst þó af því hvernig brugðist er við. Oft er best að byrja á einu afmörkuðu vandamáli áður en fleiri mælingum er bætt við.

Ekki þarf alltaf að endurnýja hússtjórnarkerfið. Þráðlausir skynjarar geta bætt við mælingum þar sem erfitt er að leggja nýjar lagnir.

Sentinum Febris skynjari fyrir mælingar í byggingum