Mælingar og IoT
Mælingar á hita, raka, loftgæðum og orku- og vatnsnotkun í byggingum og á dreifðum starfsstöðvum.

Hverju viltu fylgjast með?
Við veljum mælingar eftir því hverju þú vilt fylgjast með í rekstrinum. Auk mæligilda má safna upplýsingum um stöðu búnaðar, til dæmis hvort hann sé í gangi.
Tenging eftir aðstæðum
LoRaWAN, NB-IoT og LTE-M eru meðal tenginga sem við notum. Val á tengingu fer eftir búnaðinum og því hvar hann er staðsettur. Einnig má sækja gögn úr mælum og stjórnkerfum sem eru þegar í notkun.
Mæligögn og viðvaranir
Á mælaborði má sjá nýjustu mælingar og skoða breytingar yfir tíma. Viðvaranir láta vita þegar gildi fara út fyrir ákveðin mörk. Gögnin má flytja út eða tengja við önnur kerfi. Við vinnum meðal annars með Sentinum, Milesight, ChirpStack og ThingsBoard.