Myndgreining við gæðaeftirlit á færiböndum
Gaflarar vinna með myndgreiningu við gæðaeftirlit í framleiðslu og tengingu niðurstaðna við stýrikerfi.
Greiningin er notuð til að meta ástand vara og umbúða og staðfesta að prentuð dagsetning og lotunúmer séu rétt og til staðar.
Prófað á framleiðslulínunni
Lýsing, sjónsvið og hraði færibands hafa áhrif á hvað hægt er að greina. Búnaðurinn er því prófaður með þeim vörum og við þær aðstæður sem hann á að vinna við.
Í prófunum Gaflara er meðal annars CamThink-búnaður sem vinnur úr myndum á tækinu sjálfu. Greiningarlíkanið er þjálfað með myndum úr framleiðslunni og síðan prófað á færibandinu.
Boð til stýringar
Boð frá myndgreiningarbúnaði eru þegar í notkun í prófununum. Þau geta kallað fram viðvörun eða farið til PLC-stýringar. Greiningin þarf að vera nógu hröð til að hægt sé að bregðast við á réttum stað á færibandinu.
Áfram er unnið að þjálfun og prófunum á áreiðanleika við mismunandi aðstæður.
