Myndgreining og aðgangsstýring
Myndgreining á vörum og umbúðum í framleiðslu, ásamt bílnúmeralestri fyrir hlið og aðgangsstýringu.

Eftirlit með vörum og umbúðum
Myndgreining er notuð til að meta ástand vara og umbúða, telja vörur og greina hvort þær séu til staðar. Hún getur einnig staðfest að prentuð dagsetning og lotunúmer séu rétt og til staðar.
Prófanir og tenging við stýringu
Búnaðurinn er prófaður með þeim vörum og við þær aðstæður sem hann á að vinna við. Lýsing, sjónsvið, hraði færibandsins og leyfilegur viðbragðstími ráða miklu um útfærsluna. Niðurstöðurnar má nýta í viðvörunum eða senda til PLC-stýringar.
Bílnúmeralestur og aðgangur
Við tengjum myndavélar og aðgangsbúnað við hlið og slár. Með rekstraraðila förum við yfir hverjir eiga að fá aðgang, hvernig kerfið á að virka og hvernig meðhöndla á upptökur og bílnúmer. Tengimöguleikar ráðast af búnaðinum.