Þjónustusaga búnaðar aðgengileg á einum stað
Með QR-kóða á tæki má opna þjónustusögu þess í vafra, skoða fyrri færslur og skrá bilun eða athugasemd.
Hvenær var síðast farið yfir tækið? Hvað var gert og hvað á eftir að laga? Svörin geta legið í tölvupósti, á vinnuseðli eða hjá starfsmanni sem þekkir búnaðinn.
Rafræn þjónustubók Gaflara safnar þessum upplýsingum við hvert tæki og gerir þær aðgengilegar þeim sem sinna viðhaldinu.
Fyrri viðgerðir og ólokin mál
Tæknimaður getur kynnt sér fyrri viðgerðir og séð hvað á eftir að gera áður en hann byrjar á verkinu. Skráningin nýtist líka þegar nýr starfsmaður eða annar þjónustuaðili tekur við.
Þjónustubókin hentar meðal annars fyrir stjórnskápa, loftræsikerfi, dælur, rafmagnstöflur og hurðakerfi. Hún getur staðið ein og sér eða verið hluti af þjónustusamningi við Gaflara.
Við aðstoðum við að velja hvaða búnað á að skrá, merkja hann og koma skráningunni í notkun.
