Þjónusta Gaflara

Rafræn þjónustubók

Skoðaðu þjónustusögu búnaðar og skráðu bilanir með því að skanna QR-kóða á tækinu.

Þjónustubók úr fyrirtækjakynningu Gaflara

Sagan fylgir búnaðinum

QR-kóði á tæki opnar þjónustusögu þess. Starfsmaður getur skoðað fyrri færslur, skráð athugasemd eða tilkynnt bilun þar sem búnaðurinn er staðsettur.

Yfirsýn yfir opin mál

Þjónustufærslur og bilunarmál safnast á einn stað. Þannig sést hvað hefur verið gert og hvaða mál bíða eftirfylgni.

Sjálfstæð lausn eða þjónustusamningur

Þú getur notað þjónustubókina óháð því hver sinnir viðhaldinu. Hún getur líka verið hluti af þjónustusamningi við Gaflara.