Gaflarar eru samstarfsaðili Sentinum á Íslandi
Gaflarar eru samstarfsaðili Sentinum á Íslandi og sjá um ráðgjöf, uppsetningu og tengingu þráðlausra skynjara við vöktunar- og stýrikerfi.
Þráðlausir skynjarar frá Þýskalandi
Sentinum er þýskur framleiðandi innan ifm-samstæðunnar. Í vöruframboðinu eru meðal annars skynjarar fyrir hita, raka, loftgæði, fyllingarstig og þrýsting, auk raforkumæla og staðsetningartækja. Búnaðurinn notar LoRaWAN, mioty, NB-IoT eða LTE-M, eftir gerð.
Frá vali á skynjara að uppsetningu
Við finnum með þér hvað þarf að mæla og hvaða búnaður hentar. Eftir uppsetningu og gangsetningu tengjum við mæligögnin við kerfi þar sem hægt er að skoða þau og fá viðvaranir.
Skoðaðu Sentinum-vörulínurnar eða hafðu samband við okkur um mælingar fyrir þinn rekstur.
Samstarfsaðili á Íslandi