Loftræsikerfi
Gaflarar sinna reglubundnu viðhaldi, síuskiptum, bilanagreiningu og viðgerðum á loftræsikerfum. Við stillum hitastýringar og gerum breytingar á kerfum þegar þarfir húsnæðisins breytast.

Viðhald, síuskipti og viðgerðir
Við skiptum um síur og förum yfir virkni blásara, spjald-, og brunaloka, hitanema, og stýringa. Ef loftflæði minnkar, hitinn sveiflast eða viðvaranir koma upp greinum við orsökina og prófum virkni kerfisins að viðgerð lokinni.
Loftgæði, þægindi og orkunotkun
Rétt valdar síur fanga ryk og aðrar agnir úr loftinu. Við veljum síur sem henta búnaðinum og því loftmagni sem kerfið þarf að skila.
Við stillum loftmagn, hita og keyrslutíma eftir notkun húsnæðisins. Þannig má draga úr óþarfa viftukeyrslu og hitun um leið og fólk fær nægt ferskt loft og jafnari hita.
Rafræn þjónustubók
Í rafrænni þjónustubók Gaflara má halda utan um síuskipti, viðhald og bilanir. Með því að skanna QR-kóða á tækinu getur starfsfólk séð þjónustusöguna og tilkynnt bilun á staðnum.
Vantar þig þjónustu við loftræsikerfi?
Hafðu samband vegna viðhalds, bilunar eða breytinga á loftræsikerfi.