Rafverktakafyrirtækið Gaflarar ehf hóf starfsemi 1. janúar 1992 í Hafnarfirði.
- Eigendur eru Þorvaldur Friðþjófsson, Ólafur Hjálmarsson, Sigurður Óli Þorvaldsson og Kristján Viðar Hilmarsson
- Staðsetning verkstæðis og skrifstofu er að Lónsbraut 2 í Hafnarfirði
Aðalstarfsemi fyrirtækisins er raf- og tölvulagnir í nýbyggingar, þjónusta við fyrirtæki og stofnanir, viðhald og viðgerðir á almennum raflögnum.
Notkun á öryggiskerfum fer sífellt vaxandi og fylgjumst við vel með nýjungum þar, bæði brunaviðvörunar-, innbrotsviðvörunar-, eftirlitsmyndavélar- og aðgangsstjórnunar-kerfum.
Forritun á KNX (insta-bus) hússtjórnarkerfum: þar erum við með góða þekkingu og öll leyfi sem þarf til þess að skila þannig verkefnum af okkur. Sóttum námskeið hjá umboðsaðila erlendis.
Gerum tilboð í smærri sem stærri verkefni.
Gaflarar ehf eru aðilar að Samtökum rafverktaka – SART