Milesight · Staðsetningartæki
AT101
AT101 er staðsetningartæki fyrir búnað og lausamuni. Það notar GNSS og skönnun á Wi-Fi aðgangspunktum við staðsetningu og sendir gögnin yfir LoRaWAN.

Hvar nýtist varan?
Fyrir gáma, vinnubúnað og aðra lausamuni sem eru innan dreifikerfis LoRaWAN. Hægt er að fylgjast með staðsetningu og fá boð um halla eða ef tækið er fjarlægt.
Helstu upplýsingar
| Gagnasending | LoRaWAN · EU868 |
|---|---|
| Staðsetning | GNSS og skönnun Wi-Fi aðgangspunkta |
| Viðbótarvöktun | Halli, hitastig og rof á festingu |
| Aflgjafi | Skiptanlegar rafhlöður |
| Hlífðarflokkur | IP67 · höggþol IK09 |
LoRaWAN-þekja þarf að vera til staðar til að gögn skili sér. Þetta er ekki farsímatengt GPS-tæki. Wi-Fi staðsetning krefst úrvinnslu staðsetningargagna; tækið tengist ekki Wi-Fi-netinu sjálfu.