Vörulína · Straummælar

CT

CT-línan mælir straum með straumspennum sem eru settir utan um leiðara. Gögnin nýtast til að fylgjast með álagi, gangtíma og breytingum í rekstri rafbúnaðar.

Milesight · Dæmi um búnað úr CT-línunni

Hvar nýtist vörulínan?

Fyrir rafmagnstöflur, mótora, dælur og annan rafbúnað þar sem þarf að sjá álag eða greina hvort búnaður sé í gangi.

Útfærslur í vörulínunni

Helstu valkostir. Við aðstoðum við að velja gerð og samskipti fyrir verkefnið.

CT101 / CT103 / CT105

CT10x-línan fyrir straummælingu á einum leiðara. Gerð er valin eftir straumi og stærð leiðara.

Meira hjá framleiðanda ↗
CT303 / CT305 / CT310

CT3xx-línan fyrir þriggja fasa straummælingu. Fæst fyrir mismunandi straumsvið og leiðarastærðir.

Meira hjá framleiðanda ↗

Helstu upplýsingar

Tæknilegt yfirlit — Milesight CT
MælingRMS straumur
GerðirEinfasa CT10x og þriggja fasa CT3xx
SamskiptiLoRaWAN · EU868
AflgjafiOrka frá mældum leiðara eða USB Type-C, eftir aðstæðum
UppsetningStraumspennar utan um staka leiðara

Straummæling ein og sér jafngildir ekki mælingu á raunorku í kWh. Ef markmiðið er nákvæm raforkumæling veljum við búnað út frá því. Lágmarksstraumur fyrir sjálfknúna notkun er mismunandi eftir gerð.

Gögn frá framleiðanda

Tæknigögn vörulínunnarPDF · enska · MilesightCT3xx · tækniblaðPDF · enskaVörusíða hjá Milesight ↗