TS60x
TS601 og TS602 senda mæligögn um 4G farsímanet. Þeir henta þar sem fylgjast þarf með hitastigi án þess að setja upp LoRaWAN-net, til dæmis í kældum geymslum eða við flutning á vörum.
Hvar nýtist vörulínan?
Fyrir kælivörur, matvælageymslur og flutninga. Val á nema og uppsetningu ræðst af hitastigi og því hvort mæla á loft eða nota ytri nema.
Útfærslur í vörulínunni
Helstu valkostir. Við aðstoðum við að velja gerð og samskipti fyrir verkefnið.
- TS601
Innbyggður hita- og rakamælir með stöðuljósi.
Meira hjá framleiðanda ↗- TS602
Með skjá og tengingu fyrir ytri hitanema eða hita- og rakanema. Meðal valkosta eru PT100- og DS18B20-nemar.
Meira hjá framleiðanda ↗
Helstu upplýsingar
| Samskipti | 4G · LTE Cat.1 · SIM-kort |
|---|---|
| Gerðir | TS601 með innbyggðum nema; TS602 fyrir ytri nema |
| Aflgjafi | Skiptanlegar rafhlöður |
| Gögn | Staðbundin gagnageymsla og endursending |
| Hlífðarflokkur | IP67 |
TS60x notar ekki LoRaWAN. SIM-kort, farsímaþekja og gagnasamband þurfa að vera til staðar. Hitamælisvið ræðst af gerð og völdum ytri nema.