UR32
UR32-línan sameinar UR32L, UR32S og UR32 á einni vörulínu. UR32L og UR32S sjá um einfaldari nettengingar, en UR32 bætir við tveimur SIM-kortum, raðsamskiptum og stafrænum merkjum.
Hvar nýtist vörulínan?
Fyrir fjaraðgang að vélum, tengingu smærri starfsstöðva og nettengingu iðnbúnaðar. Útfærsla er valin eftir þörf fyrir Wi-Fi, varasamband og tengingu við stýringar.
Útfærslur í vörulínunni
Helstu valkostir. Við aðstoðum við að velja gerð og samskipti fyrir verkefnið.
- UR32L
Einfaldur 4G router með tveimur Ethernet-tengjum og einu SIM-korti. Án Wi-Fi, Serial RS-232/485 og DI/DO. PoE er valbúnaður.
- UR32S
4G router með 2,4 GHz Wi-Fi, tveimur Ethernet-tengjum og einu SIM-korti. Wi-Fi getur verið aðgangspunktur eða biðlari. PoE er valbúnaður.
- UR32
Iðnrouter með tveimur SIM-kortum, Serial RS-232/485, DI/DO og Python-stuðningi. Velja má Wi-Fi eða GNSS, ásamt PoE eftir útfærslu.
Helstu upplýsingar
| Farsímasamband | 4G LTE Cat 4 |
|---|---|
| Ethernet | 2 × 10/100 Mbps · WAN/LAN eða tvö LAN |
| SIM | UR32L og UR32S: eitt · UR32: tvö fyrir varasamband |
| Wi-Fi | UR32S: 2,4 GHz · UR32: valbúnaður · UR32L: án Wi-Fi |
| GNSS | Valbúnaður í UR32, í stað Wi-Fi |
| Serial RS-232/485 | UR32: RS-232, RS-485 eftir útfærslu |
| Stafræn merki | UR32: 1 DI + 1 DO |
| PoE | Valbúnaður: allt að tvö 802.3af/at aflgjafarport |
| Aflgjafi | 9–48 VDC; 48 V fyrir PoE-aflgjöf |
Í UR32 þarf að velja annað hvort Wi-Fi eða GNSS við pöntun; ekki er hægt að hafa bæði. Einnig má velja útfærslu án beggja. RS-232/RS-485 og PoE ráðast af valinni útfærslu.
