Þjónusta Gaflara
Tölvulagnir og ljósleiðarar
Netlagnir og tengingar fyrir húsnæði, tæknibúnað og daglegan rekstur.

Lagnir og tengingar
Við leggjum tölvulagnir og ljósleiðara í íbúðar- og atvinnuhúsnæði og sinnum breytingum á fyrirliggjandi lögnum.
Net fyrir tæknikerfi
Við leggjum net fyrir stýringar, myndavélar, mæla og aðgangskerfi. Netlagnirnar má vinna samhliða raflögnum og uppsetningu búnaðar.
Búnaður og rekstur
Við vinnum meðal annars með netbúnað frá UniFi. Við förum yfir aðgang að netinu, hvort aðskilja þurfi tæki eða kerfi og hvernig best sé að sinna þjónustu.