Milesight · Hurðanemi

WS301

WS301 er rafhlöðuknúinn segulnemi sem sendir stöðu hurðar eða glugga yfir LoRaWAN. Hann getur einnig sent boð ef reynt er að fjarlægja nemann.

Milesight WS301 hurðanemi með segli

Hvar nýtist varan?

Fyrir hurðir, glugga og skápa í húsnæði. Stöðugögn má nota í rekstraryfirliti, viðvörunum eða sem hluta af tengingu við hússtjórn.

Helstu upplýsingar

Tæknilegt yfirlit — Milesight WS301
SkynjunOpnun og lokun með segulsnertu
SamskiptiLoRaWAN · EU868
AflgjafiRafhlaða
UppsetningInnandyra · nemi og segull á karm og hurð

Staðsetning nema og seguls þarf að henta karminum. Við veljum uppsetningu og viðvaranir eftir notkun hurðarinnar.

Gögn frá framleiðanda

TækniblaðPDF · enska · MilesightVörusíða hjá Milesight ↗