Þjónusta Gaflara

Brunaviðvörunar- og öryggiskerfi

Uppsetning, tengingar og þjónusta við öryggisbúnað í heimilum og atvinnuhúsnæði.

Atvinnuhúsnæði úr fyrirtækjakynningu Gaflara

Brunaviðvörun

Við sinnum raflögnum, uppsetningu, viðhaldi og eftirliti brunaviðvörunarkerfa. Við förum yfir kerfið, húsnæðið og þær kröfur sem gilda áður en samið er um þjónustuna.

Innbrotsvörn og myndavélar

Við leggjum lagnir og setjum upp búnað fyrir innbrotsvörn og myndavélaeftirlit. Með viðskiptavini förum við yfir staðsetningu búnaðar, nettengingar og aðgang vegna þjónustu.

Aðgangsstýring

Við setjum upp og tengjum aðgangsbúnað fyrir húsnæði og hlið. Með viðskiptavini förum við yfir hverjir eiga að fá aðgang, hvernig kerfið á að virka og hvort tengja þurfi það við önnur kerfi.