Þjónusta Gaflara

Iðnstýringar og sjálfvirkni

Hönnun, rafvinna og forritun stýrikerfa fyrir vélar, dælur og framleiðslulínur.

Raunbúnaður við framleiðslulínu úr myndasafni Gaflara

PLC, HMI og SCADA

Við vinnum með Siemens LOGO!, S7-1200, S7-1500 og ET 200SP. Við forritum stýringar og skjámyndir í TIA Portal, tengjum vélar saman og sinnum breytingum og bilanagreiningu á eldri kerfum.

Mótorstýringar með NFO Drives

NFO Sinus skilar hreinni sínusspennu til mótors. Búnaðurinn er hannaður fyrir óskermaða mótorkapla og langar kapallagnir. Það hentar sérstaklega borholudælum þegar stjórnbúnaður á að vera inni í húsi. Þversnið, spennufall og uppsetning eru metin fyrir hvert verk.

Gangsetning og rekstur

Við gangsetningu prófum við merki, ræsingu, stöðvun og samskipti við búnaðinn. Við tökum afrit af forritum og skjölum kerfið svo auðveldara sé að sinna viðhaldi og breytingum síðar.