Vörulína · 5G útirouter

UF51

UF51 er 5G útirouter í IP67-húsi með innbyggðum loftnetum. Hann tengist staðarneti um Ethernet og getur fengið afl um netstreng. Velja má útfærslu með eða án Wi-Fi 6.

Milesight UF51

Hvar nýtist vörulínan?

Fyrir nettengingu bygginga, tímabundinna vinnusvæða og búnaðar utandyra. Hægt er að koma tækinu fyrir á vegg eða mastri þar sem farsímamóttaka hentar best.

Útfærslur í vörulínunni

Helstu valkostir. Við aðstoðum við að velja gerð og samskipti fyrir verkefnið.

Án Wi-Fi

5G-tenging við staðarnet um Ethernet. Hentar þar sem þráðlaust staðarnet er ekki nauðsynlegt eða er þegar til staðar.

Með Wi-Fi 6

Bætir við samtímis 2,4 og 5 GHz Wi-Fi. GNSS og PoE-aflmóttaka eru áfram til staðar.

Helstu upplýsingar

Tæknilegt yfirlit — Milesight UF51
Farsímasamband5G SA/NSA og 4G LTE
Ethernet1 × 2,5 GbE WAN/LAN + 1 × Gigabit LAN
SIMEitt micro-SIM
Wi-FiValbúnaður: Wi-Fi 6, 2,4 og 5 GHz, 4×4 MIMO
GNSSInnbyggt
Serial RS-232/485RS-485; RS-232 sem vélbúnaðarvalkostur
Stafræn merki1 DI + 1 DO
PoE802.3at PoE PD á WAN/LAN-tengi — aflmóttaka
Hús og loftnetIP67 · innbyggð farsíma- og GNSS-loftnet
UppsetningVegg- eða mastrafesting, meðal annarra valkosta

PoE á UF51 tekur við afli til að knýja tækið; það er ekki PoE-aflgjafi fyrir annan búnað. Við veljum Serial RS-232/485, aflgjöf og festingar eftir uppsetningu.

Gögn frá framleiðanda

UF51 · tækniblaðPDF · enska · MilesightVörusíða hjá Milesight ↗