UR75
UR75 er 5G iðnrouter fyrir kerfi sem þurfa meiri bandbreidd og fjölbreyttar tengingar. Fimm Gigabit Ethernet-tengi, tvö SIM-kort og Serial RS-232/485 tengja saman nettengdan búnað og iðnkerfi. Wi-Fi 6 og PoE eru valin eftir þörfum.
Hvar nýtist vörulínan?
Fyrir stærri stýrikerfi, myndavélar, gagnasöfnun og fjaraðgang að iðnbúnaði. Hentar þar sem Gigabit-staðarnet og 5G-tenging eru nauðsynleg.
Útfærslur í vörulínunni
Helstu valkostir. Við aðstoðum við að velja gerð og samskipti fyrir verkefnið.
- Wi-Fi 6
Útfærsla með samtímis 2,4 og 5 GHz Wi-Fi. Hægt er að hafa GNSS með Wi-Fi.
- PoE
Útfærsla með aflgjöf til samhæfra tækja um fjögur LAN-tengi.
- Wi-Fi 6 og PoE saman
Sameinar þráðlaust staðarnet og PoE-aflgjöf í sama tæki, ásamt GNSS.
Helstu upplýsingar
| Farsímasamband | 5G SA/NSA og 4G LTE |
|---|---|
| Ethernet | 5 × Gigabit Ethernet · 1 WAN + 4 LAN |
| SIM | Tvö SIM-kort fyrir varasamband |
| Wi-Fi | Wi-Fi 6, 2,4 og 5 GHz samtímis, eftir útfærslu |
| GNSS | Innbyggt; má nota ásamt Wi-Fi |
| Serial RS-232/485 | 1 × RS-232 + 1 × RS-485 |
| Stafræn merki | 1 DI + 1 DO |
| PoE | Valbúnaður: fjögur 802.3af/at aflgjafarport |
| Samþætting | Node-RED fyrir sérhæfða gagnavinnslu og samþættingar |
| Aflgjafi | 9–48 VDC eða USB-C; 48 V fyrir PoE-aflgjöf |
Tvær SIM-kortaraufar gera kleift að velja varasamband milli farsímaneta. Við förum yfir Wi-Fi, PoE-aflþörf og loftnet við val á útfærslu.
